clockhere

Tenglar

Flettingar í dag: 7
Gestir í dag: 5
Flettingar í gær: 24
Gestir í gær: 12
Samtals flettingar: 59796
Samtals gestir: 20538
Tölur uppfærðar: 17.5.2012 09:05:11

Í hnetuskel

Nafn:

Jóhann Elvar

Farsími:

8979773

Afmælisdagur:

Hrekkjavakan

Staðsetning:

Akureyri

Heimasími:

5539773

Um:

Alþjóðlegt útlit & vinaleg framkoma.

Uppáhalds matur:

Seðlaveski

13.04.2012 22:35

Lífsmark !

Heilt og sælt veri mannfólkið.
Afar löngu flutninga/húsnæðisendurbóta & bakmeiðsla orlofi líkur senn. Hvar er verið að keyra, hverjir eru að keyra og þar fram eftir götunum,... látið í ykkur heyra, ég þarf að ferðast með ykkur.

13.07.2011 09:21

Vetrarverkefnið

Jæja ég impraði lauslega á því í síðustu færslu að 8-hjóla græja hefði verið versluð og hér birtist hún í allri sinn dýrð. Það verður gaman að græja þetta fjölnota kvikindi upp og svo er eitthvað alveg sérlega spaugilegt við að þvælast um á þessu.
Það sést aðeins glitta í beltin sem fylgdu fyrir aftan tækið en einn al skemmtilegasti fídusinn  er vafalaust sá að þetta flýtur og það er eins og það sé gert ráð fyrir utanborðsmótor í boddí-inu. Mótorinn verður auðfenginn þar sem að ég á svokallaðan Zodiac sem er einmitt með þessháttar útbúnaði þannig að já,.. get ekki sagt annað en að mig hlakki til.
Fyrir þá sem eru að velta stærðar mismun á blöðrunum fyrir sér þá kemur þetta til af því að það er kominn slanga í sum önnur ekki, verður lagað.


21.06.2011 21:44

Ja hérna hér,..

Núna bara verður einhver að rúlla á Veðurstofu Íslands og setja hnefann í borðið. Allt ófært meira og minna á hálendinu, næturfrost og bara almennt viðurstyggilegt veðurfar, þetta eru ríkisstarfsmenn og ég kæri mig ekki um svona lagað. Það eru nýjar vélsleðamyndir á Facebook nokkrum sinnum í viku og það bara úr fjöllunum heima,... hvað er að gerast?

En annars þá var ég að versla 8 hjóla græju sem getur farið yfir vatn og svo í þokkabót þá fylgdu belti með. Þetta á að vera vetrarverkefnið mitt að skvera þetta í horfið enda eins gott að vera klár með beltin fyrir næsta sumar ef þetta á að vera svona.

Annars væri fínt að fá að vita hvað er í gangi og hvort mannskapurinn sé að plana einhverjar ferðir, stuttar eða langar,.. koma svo.

15.03.2011 14:12

Kaupstaðarferð

Verð á ferðinni í RVK á miðvikudag og er mjög sennilega að fara að kippa dótaríi upp fyrir 2 aðila úr Fjórhjólalagernum þannig að ef ykkur vantar að fá eitthvað sent Norður þessu tengt þá get ég svippað því upp fyrir ykkur. Kem líklega einnig við í M-sport þannig að þið vitið það þá, svo er ekkert mál að rúlla í umboðin bara ef það er e-h í fjórhjól.

Það spáir svo frosti þannig að ef það verður einhver snjór eftir þá vitið þið hvað það þýðir.

11.03.2011 16:58

Nýjasti heimskautakötturinn

Hérna er smá hreyfimynda kynning á þvi sem Arctic Cat laumuðu á sviðið eftir að vera búnir að sýna 2012 vélsleðalínuna. Greinilegt að þeir ætla að svara Can-am með Commander og Polaris RZR fullum hálsi. Ég fann ekkert inni á síðunni hjá þeim þ.e.a.s. Arctic Cat um þetta fyrirbæri þannig að við verðum bíða aðeins með tæknilegar upplýsingar en greinilegt á fjöðrun og útliti að um sport útfærslu er að ræða.

Video af nýjum ketti

09.03.2011 17:07

2 spurningar og 1 beiðni.

Ég er að fara að skoða 2 atriði betur til þess að það sé hægt að skrifa um það af einhverju viti. Annarsvegar eru það þessar vetnis breytingar fyrir fjórhjólin okkar (hef séð svoleiðis við fjórhjól) og svo hinsvegar einhvern galla í yfirþrýstingsventli við vatnskassan í Can-Am '07-0? sem gerir það að verkum að það kviknar á hitaljósinu undir "frekar" eðlilegum aðstæðum.

Ef þið vitið eitthvað um þessi mál endilega þá smellið smá glósu í athugasemdirnar eins ef það er e-h sérstakt sem þið viljið að sé farið betur yfir.

Takið svo páskana frá fyrir góðan túr, stefnir í 3-5 daga hressleika.


25.02.2011 00:14

Reykjanes rúntur

Hérna er eitthvað fyrir þá sem eru fyrir sunnan. Keflvíkingarnir eru að fara rúnt um Reykanesið og ég get vottað að þar er mikið af fínum slóðum.

AÍFS Fjórhjóladeild

18.02.2011 21:09

Moldhaugaháls/Hlíðarfjall

Seinniparts rispan var farin upp Moldhaugahálsinn (með leyfi frá bónda) og uppá Litla-Hnjúk. Þetta var svolítið brölt til að byrja með en stórskánaði eftir að við komumst í almennilega snjólínu, sama leið tekin til baka sökum vankunnáttu á staðháttum, sjúklegrar hálku og vinnu síðar um kvöldið.
Meira á morgun og sennilega verður Glerárdalurinn fyrir valinu.



18.02.2011 07:56

Títtnefndar hressingar skreppur

Það er auðvitað einn af fjölmörgum kostum þess að búa ofan í þessum skurði að þú ert innan við 10 mín að fara upp í hlíðar þriggja fjalla. Við tókum 2 af 3 í gær, svissuðum bara yfir í Hlíðarfjall þegar að það byrjaði að læðast þoka yfir heiðinna og svo er harðfennið þannig að þú getur þvælst eins og Skoskur fjárhundur útum allt, þó ekki eltandi neitt nema gleðina.
Ef það á endilega að koma með glósu um auka kostnað þá má nefna það að ónegldir menn eru útá spássíu raunveruleikans enda er hvort sem er um að ræða einhverja ódýrustu líftryggingu sem um getur. Í framhaldi af því má svo geta þess að hingað til höfum við verið ónegldir félagarnir en það verður lagað sem fyrst.

Í stuttu máli, þeir sem geta komið að hjóla um helgina ættu að koma. Það verður þess virði.

Þessi ljósmynd var svo tekinn um 5 leitið í gær á leið niður.


17.02.2011 13:16

Stóra sýningin

Það var nóg um að vera fyrir Norðan síðustu helgi og gaman að sjá að fjórhjólin eru alltaf að koma sterkari og sterkari inn. Flestir af risaframleiðendunum eða öllu heldur umboðin þeirra hérlendis voru með bæði vélsleða og fjórhjól en þó hefði verið gaman að sjá t.d. VDO og CF-Moto með bása  bara þannig að einhverjir séu nefndir sem vantaði.


09.02.2011 12:00

Mountains and mud & Mud nationals

Jæja ég er búinn að vera að reyna að grafa upp listann yfir þá sem vildu fá þessar myndir en það hefur ekki gengið vel, en allavega þá eru þetta 6 stk. af DVD á 3000.kr. 5 M&M og svo ein um Mud nationals þannig að þeir sem vildu fá þetta eru beðnir um að skrifa sig hér fyrir neðan.

Svo eru gleðifréttir af samskiptakerfunum, vil fáum þesslags útbúnað til reynslu um helgina og þegar að það verður búið að smíða almennilegan pakka (sem er vonandi búið að gera) þá fer það í pöntun hjá okkur á einhverju súpergjaldi.

05.02.2011 17:20

Glerárdalur að Lamba

Eftir vinnutörn á hafinu og svo bráðskemmtilega ferð til Köben beint í kjölfarið skilaði ég mér aftur þangað þar sem ég á að vera, til Akureyrar.
Það er ekki annað hægt að segja en það sé alveg dásamlegt fjórhjólafæri hérna í grendinni, grjóthart alltsaman og bara stöku melur sem stendur uppúr en hér og þar hefur skafið aðeins og getur það reynst ansi skeinuhætt enda fór það svo að einn af okkur velti eina 4 hringi eftir að hafa ekið í slíka gloppu en slapp sem betur fer alveg stráheill og hjólið að mestu. Það bar annars lítið til tíðinda nema að þetta var ferlega hressandi og svo það að hjólið mitt datt yfir 10.000 km múrinn.

Ég setti svo slatta af ljósmynum inná Picasa sem ég skora á ykkur að skoða þannig að þið áttið ykkur betur á því hvað það er sjúklega hresst færi hérna núna.  Svo eru 97-98% líkur á að við förum aftur á morgun ef einhverjir vilja fljóta með.


08.01.2011 00:51

Úff,..

Það er ekki annað hægt en að óska vélsleðaeigendum til hamingju. Njótið en munið að okkar tími mun koma.

03.01.2011 13:44

Razor XP

Það er alþekkt staðreynd að ég er svokallaður Polaris maður en þó svo að ég væri eitthvað annað þá mundi ég samt finna mig knúinn til þess að viðurkenna að flestir framleiðendur draga lappirnar í kreppunni meðan að mínir menn dæla út nýungum eða uppfærslum.

Það sem rúllar af færiböndunum í Minnesota núna er Razor XP sem er gefinn upp 88hp sem eru framleidd í 875cc hesthúsi sem er nokkuð dularfullt miðað við að Can-am Commanderinn er mældur 85 hö með 1000cc, kannski eru Kanadískir hestar bara minni. Látum það koma í ljós síðar en það sem ég held að sé alveg á kristaltæru er að það er ekkert fyrirbæri af þessum SXS (Side by side) græjum sem kemur jafn innilega vígbúin af fjöðrunarbúnaði, 13 & hálf tomma að framan og 14 staðgreiddar að aftan sem segir okkur að það verður lítið mál að fara í berjamó á 90 kílómetrunum. Ég að vísu hvet menn til þess að sleppa náttúruspjöllum og halda sig á vegum og slóðum en þið vitið hvað ég er að fara,.. þetta fjaðrar hálfa leiðina til helvítis.

RZR XP Video í boði